Úrslit í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar
Nú á dögunum réðust úrslit í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar sem haldin er árlega í grunnskólum landsins.
Mia Ðuric nemandi í 4. bekk var ein af sigurvegurum keppninnar í ár. Myndin hennar var í hópi þeirra rúmlega 1.400 mynda sem bárust í keppnina. Sigurvegarinn hlýtur viðurkenningarskjal ásamt 40.000 kr. sem renna í bekkjarsjóð. Bekkurinn getur nýtt sér verðlaunin til þess að gera sér glaðan dag.
Til hamingju Mia og 4. bekkur!
Hi, this is a comment.
To get started with moderating, editing, and deleting comments, please visit the Comments screen in the dashboard.
Commenter avatars come from Gravatar.