Foreldrafelagið - Fellaskóli

Foreldrafélag Fellaskóla

Almennar upplýsingar

Foreldrafélag er formlegur samstarfsvettvangur forráðamanna þar sem þeim gefst kostur á að ræða skólagöngu barna og hvaðeina sem snertir uppeldi og menntun. Félagið hefur unnið að ýmsum verkefnum með skólanum m.a. útihátíðum og skólaslitum.

 

Aðrar upplýsingar

Foreldrafélagið nýtur ekki fastra styrkja en aflar fjár með innheimtu félagsgjalda og ýmsum öðrum fjáröflunarleiðum. Félagið sér um jólabingó, páskabingó o.fl. í samráði við forráðamenn í 10. bekk. Forráðamenn sjá einnig um að undirbúa og skipuleggja ferð fyrir 10. bekkinga við skólalok.

Foreldrafélag Fellaskóla á fulltrúa í SAMFOK Samtökum foreldrafélaga og forráðamennáða í grunnskólum Reykjavíkur. Þá hefur stjórn foreldrafélags Fellaskóla náið samstarf við stjórnir foreldrafélaga annarra grunnskóla í Breiðholti. Foreldrafélag Fellaskóla starfar skv. 9. gr. laga um grunnskóla. Þar segir að við hvern grunnskóla skuli starfi foreldrafélag. Foreldrafélagið setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Hlutverk foreldrafélagsins er m.a. eftirfarandi:

Markmið

  • að styðja við skólastarfið
  • stuðla að velferð nemenda skólans
  • efla tengsl heimilis og skóla
  • hvetja til virkrar þátttöku forráðamanna í skólastarfi
  • hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
  • Stjórn foreldrafélagsins gerir sér verkefnaskrá fyrir hvert ár og er hún birt á heimasíðu skólans þegar hún er tilbúin. Nöfn og netföng verða færð inn eftir aðalfund foreldrafélagsins í haust.

Handbók foreldrafélaga grunnskóla

Heimili og skóli hafa gefið út handbækur fyrir fulltrúa foreldra á öllum skólastigum. Í þeim er lýst starfi foreldrafélaga og foreldra- og skólaráða. Hér getur þú nálgast sem pdf skjal. Handbók foreldrafélaga grunnskóla.

 

Fréttir úr starfi

Titill

 Í upphafi árs hefja nokkrir nýir starfsmenn störf við Fellaskóla. Bjarney Guðmundsdóttir Blöndal er nýr umsjónarkennari í 2. bekk en Þuríður Helga Guðbrandsdóttir lætur af störfum síðar…

Nánar